Hvað er búddismi?
Búddismi er hagnýt mannúðarheimspeki sem hefur það markmið að vekja fólk til vitundar um sína takmarkalausu möguleika og hve lífið er óendanlega dýrmætt. Þegar einstaklingur fer að ástunda búddisma á sér stað innri umbreyting í lífi hans. Hann fer að birta sína jákvæðu eiginleika og breyta ótta í hugrekki, blekkingu í visku og sjálflægni í djúpstæða samúð með öðrum.
Búddisminn kennir að allar mikilvægar breytingar hefjast með einstaklingum sem ákveða að taka ábyrgð á eigin lífi með því að byrja fyrst á því að bæta sjálfa sig og síðan leggja sig fram við að hafa jákvæð áhrif á nánasta umhverfi sitt og samskipti við aðra.
“Stórfengleg innri breyting á hugarfari einstaklingsins mun eiga þátt í að breyta örlögum þjóðar og mun ennfremur breyta örlögum mannkynsins.” (Daisaku Ikeda forseti SGI)