top of page

SGI á Íslandi

SGI á Íslandi er hluti af Soka Gakkai International sem starfa í 192 löndum og svæðum um allan heim.  

 

SGI starfar á vettvangi friðar, menningar og menntunar byggt á búddisma Nichrien Daishonin - sem er mannúðarheimspeki sem sækist eftir að valdefla einstaklinginn til að sjá hið stórkostlega verðmæti og hina einstöku möguleika síns eigins lífs.

 

Um leið og persónuleg innri umbreyting á sér stað í lífi einstaklinga hefur það í auknum mæli jákvæð áhrif á samfélagið og á þann hátt stefnir SGI að hamingju alls mannkyns.


Forseti samtakanna, Daisaku Ikeda, hefur ferðast um heiminn og byggt brýr á milli fólks með samræðum og samskiptum á sviðum friðar, menntunar og menningar.

bottom of page