SGI á Íslandi

SGI á Íslandi var stofnað 17. júní 1980. Í dag starfa samtökin í 11 hverfum með hátt í 200 meðlimi. Meðlimir SGI og gestir þeirra koma saman á mánaðarlegum umræðufundum og ræða um hin ýmsu málefni er varða lífið og tilveruna og hvernig hægt er að nýta kenningar búddismanns í daglegu lífi.

Samtökin hafa lagt sig fram við að hafa gott samstarf við aðrar friðar- og trúarhreyfingar. Þau hafa um árabil tekið þátt í að skipuleggja með öðrum, friðargöngu á Þorláksmessu og kertafleytingu í ágúst til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki.

Árið 2000 var haldin menningarhátíð á vegum SGI í Hafnarfjarðarleikhúsinu með tónlist, söng og listsýningu. Hápunktur hátíðarinnar var sýning á barnaleikritinu „Stjarnan sem týndi geislanum sínum,“ sem meðlimir samtakanna og börn þeirra stóðu að.

Í samvinnu við forvarnarnefnd Hafnarfjarðar setti SGI upp sýninguna „Gandhi, King, Ikeda. Friður fyrir komandi kynslóðir“ í menningarhúsi Hafnarfjarðar í mars 2004. Sýningin fjallar um ævi og baráttu Mahatma Gandhi, Martin Luther King og Daisaku Ikeda, fyrir friði og mannréttindum. Sýningin var sett upp fyrir nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum bæjarins. Húnn felur í sér boðskap friðar og mannúðar.